Kauptu gjafabréf

Gefðu þekkingu sem endist

Skref 1 af 2 Skref 2 af 2

Hvers konar gjafabréf?

Stakt námskeið — 19.900 kr. Áskrift í eitt ár — 29.900 kr.

Við sendum gjafabréfið á þetta netfang

Öll staðnámskeið Staðnámskeið

PowerBI

Lifandi og hagnýtt námskeið þar sem þú færð beina leiðsögn, getur spurt jafnóðum og lærir með öðrum.

Skrá mig
PowerBI
PowerBI

Upplýsingar og skráning

Hvenær

2. september
09:00 - 15:00

Hvar

Fantasíusalurinn, Vinnustofa Kjarval, Austurstræti 10a

Námskeiðsgjald

34.900 kr.

Kennari

Rebekka

Sérfræðingur hjá Íslandsbanka

Námskeiðið

Power BI hjálpar fyrirtækjum að ná betri yfirsýn yfir gögn, sjá þróun og setja upplýsingar fram á skýran hátt.

Á þessu staðnámskeiði fá þátttakendur hagnýta kynningu á Power BI og vinna sjálfir að því að byggja upp einfalt mælaborð. Farið verður yfir ferlið í heild, allt frá því að gögn eru flutt inn og undirbúin þar til þau eru sett fram í töflum, gröfum og mælikvörðum.

Áherslan er á raunhæf verkefni og hvernig hægt er að nýta Power BI í daglegu starfi. Þátttakendur læra að hreinsa gögn, tengja saman upplýsingar, velja rétta framsetningu og útbúa skýrslu sem auðvelt er að lesa og vinna áfram með.

Námskeiðið hentar þeim sem vinna með tölur, skýrslur eða aðrar upplýsingar og vilja fá betri yfirsýn yfir gögn. Ekki er gert ráð fyrir fyrri reynslu af Power BI.

Námskeiðið fer fram 2. september kl. 9–15.

Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:

  • hvernig Power BI er uppbyggt og hvenær það nýtist best
  • hvernig gögn eru flutt inn úr Excel og öðrum gagnagjöfum
  • hvernig gögn eru hreinsuð og undirbúin í Power Query
  • hvernig töflur eru tengdar saman og einfalt gagnalíkan byggt upp
  • hvernig lykiltölur, töflur, gröf og síur eru sett upp
  • hvernig útbúið er skýrt og gagnlegt mælaborð
  • hvernig skýrslum er deilt og unnið áfram með eigin gögn
Skrá mig · 34.900 kr.

Fyrirtækið

Frami menntun ehf.

kt. 590219-1420

[email protected]