Síðast uppfært: 25. júní 2026
Persónuvernd
Hér útskýrum við hvernig Frami vinnur með persónuupplýsingar þegar þú notar frami.is, skráir þig inn á nemendasvæðið eða notar Frami appið.
Ábyrgðaraðili
Frami er ábyrgðaraðili fyrir vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við vefinn, nemendasvæðið og appið. Ef þú hefur spurningar um persónuvernd geturðu haft samband við okkur á [email protected].
Hvaða upplýsingar vinnum við með?
Það fer eftir því hvernig þú notar Frama, en upplýsingarnar geta meðal annars verið:
- nafn, netfang og aðrar upplýsingar sem þú gefur okkur við skráningu eða í samskiptum,
- upplýsingar um námskeið sem þú hefur keypt, fengið aðgang að eða lokið,
- framvinda í námskeiðum, myndbönd sem þú hefur horft á og hvar þú hættir síðast,
- greiðslu- og pöntunarupplýsingar,
- skilaboð sem þú sendir í gegnum vefinn eða þjónustuleiðir Frama,
- tæknilegar upplýsingar eins og IP-tölu, tæki, vafra, villuskrár og grunnnotkunargögn.
Frami appið
Frami appið er appskel utan um nemendasvæði Frama. Appið notar sömu aðgangsupplýsingar og frami.is og sækir námskeið, myndbönd, framvindu og skírteini frá Frama.
Appið þarf ekki aðgang að staðsetningu, tengiliðum, myndum eða myndavél til að virka. Hljóð í gegnum Bluetooth eða bílkerfi fer í gegnum venjulega hljóðstýringu iOS og Android.
Til hvers notum við upplýsingarnar?
Við notum persónuupplýsingar til að:
- veita þér aðgang að námskeiðum og nemendasvæði,
- vista framvindu, resume virkni og skírteini,
- afgreiða kaup, greiðslur, kvittanir og aðgang,
- svara fyrirspurnum og veita þjónustu,
- tryggja öryggi, koma í veg fyrir misnotkun og laga villur,
- bæta vefinn, appið og námsupplifunina,
- senda þjónustutengd skilaboð og, ef við á, markaðsefni sem þú getur afskráð þig úr.
Þjónustuaðilar
Við getum notað þjónustuaðila til að reka Frama, til dæmis fyrir hýsingu, myndbandastreymi, greiðslur, tölvupóstsendingar, greiningar, villugreiningu og þjónustubeiðnir. Þessir aðilar fá aðeins þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að veita þjónustuna.
Við seljum ekki persónuupplýsingar notenda.
Vafrakökur og mælingar
Frami notar vafrakökur og sambærilega tækni til að halda þér innskráðum, muna stillingar, mæla notkun og bæta þjónustuna. Á opnum markaðssíðum geta einnig verið notaðar mælingar til að skilja árangur kynninga og auglýsinga. Nemendasvæðið og appið eru fyrst og fremst notuð til að veita námsaðgang og vista framvindu.
Varðveisla gagna
Við geymum persónuupplýsingar eins lengi og nauðsynlegt er til að veita þjónustuna, uppfylla samnings- og lagaskyldur, varðveita bókhaldsgögn, leysa úr ágreiningi og tryggja öryggi kerfa. Þegar upplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar eyðum við þeim eða gerum þær ópersónugreinanlegar eftir því sem við á.
Réttindi þín
Þú getur óskað eftir upplýsingum um hvaða persónuupplýsingar við vinnum um þig. Þú getur einnig óskað eftir leiðréttingu, eyðingu, takmörkun vinnslu eða flutningi gagna þar sem það á við samkvæmt lögum.
Sendu okkur línu á [email protected] ef þú vilt nýta réttindi þín eða fá frekari upplýsingar.
Breytingar
Við getum uppfært þessa persónuverndarstefnu þegar þjónustan breytist eða þegar þörf er á skýrari upplýsingum. Nýjasta útgáfan verður alltaf aðgengileg á þessari síðu.
