← Til baka á bloggið

Halldór Baldursson kennir þér að teikna - nýtt námskeið

10. janúar 2020 • Eftir Frami Framason

Í nýjasta námskeiði Frama kennir Halldór Baldursson þér að teikna.

Á námskeiðinu deilir Halldór reynslu sinni og aðferðum með nemendum og fer meðal annars yfir eftirtalin atriði:

  • Grunnform: Farið er yfir hvernig grunnforminn grundvalla alla teikningu. Notum grunnformin til þess að búa til teikningu af þrívíðum hlutum
  • Skygging: Samspil ljósgjafa og skyggingar. Hvar fellur skugginn og hvernig skyggjum við myndir á mismunandi vegu
  • Myndbygging: Hvernig mynd er uppbyggð til þess að draga athygli að mismunandi atriðum og skapa jafnvægi
  • Fjarvídd: Lærum að teikna í fjarvídd með einum, tveimur og síðan þremur brennipunktum.
  • Mannslíkaminn Farið yfir hlutföll mannslíkamans og hvernig hægt er að teikna mismunandi stöður á fljótlegan hátt
  • Andlitsmyndir: Nákvæmnisteikning andlits eftir ljósmynd
  • Vatnslitir: Aðferðir við vatnslitun kennd með fullvinnslu skopmyndar

Um Halldór:

Halldór hefur komið víða við og mundað pennann í margvíslegum verkefnum síðustu áratugina. Hann hefur myndskreytt á annað hundrað barna- og kennslubóka, skapað eftirminnilegar auglýsingar auk þess að teikna þúsundir hárbeittra skopmynda. Halldór er líklega þekktastur fyrir skopmyndir sínar sem birst hafa í mörgum dagblöðum landsins. í dag vinnur Halldór sem skopmyndateiknari Fréttablaðsins auk þess að kenna ýmis námskeið við Myndlistaskólann í Reykjavík.

Fyrir störf sín hefur Halldór unnið til margs konar verðlauna og viðurkenninga. Bækur sem Halldór hefur myndskreytt hafa meðal annars hlotið bæði Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku barnabókaverðlaunin. Þá hefur hann fengið margar viðurkenningar frá Félagi íslenskra teiknara í flokki myndskreytinga.

Um námskeiðið

Námskeiðið er kennt á netinu og þú færð aðgang að öllu efninu um leið og þú skráir þig. Þú getur spurt spurninga inni á lokuðu spjallsvæði sem er innifalið með námskeiðinu.

Skráðu þig hér

Fyrirtækið

Frami menntun ehf.

Grandagarði 16

101 Reykjavík