Kauptu gjafabréf

Gefðu þekkingu sem endist

Skref 1 af 2 Skref 2 af 2

Hvers konar gjafabréf?

Stakt námskeið — 19.900 kr. Áskrift í eitt ár — 29.900 kr.

Við sendum gjafabréfið á þetta netfang

Öll staðnámskeið Staðnámskeið

Framúrskarandi þjónusta fyrir stjórnendur

Lifandi og hagnýtt námskeið þar sem þú færð beina leiðsögn, getur spurt jafnóðum og lærir með öðrum.

Skrá mig
Framúrskarandi þjónusta fyrir stjórnendur
Framúrskarandi þjónusta fyrir stjórnendur

Upplýsingar og skráning

Hvenær

10. nóvember
09:00 - 12:00

Hvar

Fantasíusalurinn, Vinnustofa Kjarval, Austurstræti 10a

Námskeiðsgjald

22.900 kr.

Kennari

Guðný Halla

Framkvæmdastjóri sóknar og þjónustu Nova

Námskeiðið

Viðskiptavinir muna ekki alltaf hvað var sagt eða gert. Þeir muna hvernig þeim leið og sú upplifun mótast ekki aðeins í framlínunni heldur einnig af þeim áherslum, vinnubrögðum og stuðningi sem stjórnendur skapa.

Á þessu staðnámskeiði er farið yfir hvernig stjórnendur og millistjórnendur geta stuðlað að framúrskarandi þjónustu, byggt upp traust og skapað samræmda upplifun fyrir viðskiptavini. Farið verður í raunhæf dæmi úr stjórnendastarfi, krefjandi samtöl, kvartanir, stuðning við starfsfólk og þau augnablik þar sem viðbrögð stjórnandans skipta mestu máli.

Námskeiðið hentar stjórnendum, millistjórnendum og teymisstjórum sem bera ábyrgð á starfsfólki, þjónustu eða upplifun viðskiptavina. Áherslan er á skýrar væntingar, markvissa eftirfylgni og hagnýt verkfæri sem hjálpa stjórnendum að gera góða þjónustu að eðlilegum hluta af daglegu starfi.

Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:

  • hvernig stjórnendur móta þjónustuupplifun viðskiptavina í gegnum starfsfólkið
  • hvernig skýrar væntingar, vinnubrögð og eftirfylgni skapa samræmi í þjónustunni
  • hvernig styðja má starfsfólk í kvörtunum og krefjandi samskiptum
  • hvernig veita má gagnlega endurgjöf og taka á þjónustu sem stenst ekki væntingar
  • hvernig byggja má upp fagmennsku, ábyrgð og mannlega nálgun innan teymisins
Skrá mig · 22.900 kr.

Fyrirtækið

Frami menntun ehf.

kt. 590219-1420

[email protected]