Margir vinnustaðir eru komnir af stað með gervigreind, en notkunin er oft enn á tilraunastigi: einstaka starfsmenn prófa sig áfram, yfirsýnina vantar og reglurnar eru óskrifaðar. Þetta námskeið fjallar um hvernig komist er af tilraunastiginu. Farið er yfir hvernig gervigreindarstefna er mótuð, hvernig verkefni eru valin og forgangsröðuð, hvernig stjórnarhættir og ábyrgð eru skilgreind, og hvernig fólkið er tekið með.
Námskeiðið byggir á rannsóknum á tækniupptöku og sjálfvirknivæðingu, alþjóðlegum fyrirmyndum í stefnumótun og raunverulegum dæmum um það sem hefur heppnast og mistekist. Námskeiðið er að stórum hluta vinnustofa þar sem þátttakendur vinna með eigin skipulagsheild.
Námskeiðið hentar stjórnendum sem og öðrum sem bera ábyrgð á innleiðingu gervigreindar, hjá fyrirtækjum jafnt sem stofnunum. Ekki er gert ráð fyrir tæknilegri þekkingu. Þátttakendur fara heim með drög að gervigreindarstefnu, 90 daga innleiðingaráætlun og innleiðingarhandbók til að fylgja vinnunni eftir.
Námskeiðið fer fram 9. og 10. nóvember kl. 9 til 12 báða dagana.
Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:
- hvernig framtíðarsýn er breytt í afmörkuð notkunartilvik
- af hverju gervigreindarverkefni og stefnur bregðast, og hvernig má forðast það
- hvernig staða og þroski skipulagsheildarinnar er metinn
- hvaða getu, hlutverk og færni innleiðingin krefst, og hvernig fólkið er tekið með
- hvernig stjórnarhættir, ábyrgð og gagnaflokkun eru skilgreind, með hliðsjón af persónuvernd og gervigreindarreglugerð ESB
- hvernig verkefni eru forgangsröðuð og valið á milli þess að nota, kaupa eða smíða
- hvernig gervigreindarstefna er skrifuð á einni síðu, með mælikvörðum og 90 daga áætlun
Innleiðingarhandbók fylgir
Öllum þátttakendum fylgir innleiðingarhandbók á íslensku með sniðmátum, gátlistum og matsrömmum, meðal annars sniðmáti að stefnu, þroskamati, gagnaflokkun, spurningum til birgja og 90 daga áætlun.
Kennarinn: Dr. Hanna Kristín Skaftadóttir, Ph.D. í gervigreind og sjálfvirknivæðingu ferla í viðskiptum
