Ertu að nota gervigreind eins og flókna leitarvél eða eins og snjallan samstarfsmann? Flest okkar erum rétt að byrja að átta okkur á því hvernig tæknin getur raunverulega létt okkur lífið.
Á þessu námskeiði förum við meðal annars fara yfir:
- Samtalið: Hvernig áttu samtal við gervigreind svo hún nýtist sem best?
- Framtíðarfærni: Hvaða færni þarft þú að rækta til að halda í við tæknina?
- Mörkin: Hvenær átt þú að nota tæknina og hvenær átt þú ekki að hleypa henni að borðinu?
- Að læra að læra: Hvernig heldur þú í við heim þar sem allt breytist hraðar en áður?
- Claude: Hvernig færð þú sem mest út úr Claude, og nýtir lærdóminn í sambærilegum lausnum?
Markmiðið er að þú farir heim með skýrari mynd af því hvernig gervigreindin getur orðið þinn öflugasti samstarfsmaður.
Kennarinn: Gísli Ragnar Guðmundsson starfar hjá Almannarómi, miðstöð máltækni, þar sem hann leiðir þátttöku Íslands í samnorrænu gervigreindarmiðstöðinni New Nordics AI. Þar vinnur hann með leiðandi aðilum á Norðurlöndum að þróun og innleiðingu gervigreindar.
Flest stéttarfélög endurgreiða námskeiðsgjöld. Fyrirtæki geta einnig sótt um styrki í gegnum aðrar leiðir.
