Kauptu gjafabréf

Gefðu þekkingu sem endist

Skref 1 af 2 Skref 2 af 2

Hvers konar gjafabréf?

Stakt námskeið — 19.900 kr. Áskrift í eitt ár — 29.900 kr.

Við sendum gjafabréfið á þetta netfang

Öll staðnámskeið Staðnámskeið

Sjálfstraust, vellíðan og mörk í starfi

Lifandi og hagnýtt námskeið þar sem þú færð beina leiðsögn, getur spurt jafnóðum og lærir með öðrum.

Skrá mig
Sjálfstraust, vellíðan og mörk í starfi
Sjálfstraust, vellíðan og mörk í starfi

Upplýsingar og skráning

Hvenær

9. nóvember
09:00 - 12:00

Hvar

Fantasíusalurinn, Vinnustofa Kjarval, Austurstræti 10a

Námskeiðsgjald

22.900 kr.

Kennari

Sóley Dröfn

Yfirsálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni

Námskeiðið

Sóley Dröfn Davíðsdóttir, yfirsálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni, fer yfir sjálfstraust, líðan og álag í starfi á skýran og aðgengilegan hátt.

Á námskeiðinu verður fjallað um mynstur sem geta haft áhrif á líðan okkar í vinnunni og kynnt hagnýt verkfæri til að takast betur á við krefjandi aðstæður.

Námskeiðið hentar öllum sem vilja draga úr álagi, efla trú á eigin getu og bæta líðan sína í starfi. Þátttakendur fá hagnýtar aðferðir og æfingar sem þeir geta nýtt til að styrkja sjálfstraustið, takast á við álag og setja skýrari mörk í daglegu starfi.

Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:

  • Hvernig draga má úr álagi og stuðla að betri líðan í starfi
  • Hvernig efla má sjálfstraust og trú á eigin getu
  • Hvernig takast má á við áhyggjur og ofhugsun
  • Hvernig fullkomnunarárátta getur haft áhrif á líðan og frammistöðu
  • Hvernig setja má skýr og farsæl mörk í starfi
Skrá mig · 22.900 kr.

Fyrirtækið

Frami menntun ehf.

kt. 590219-1420

[email protected]