Grafísk hönnun

Vefnámskeið með Hrafnhildi Önnu

Um námskeiðið

Á þessu námskeiði er meðal annars farið yfir:

  • Hönnunarferlið: Hver eru grundvallaratriði grafískrar hönnunar? Hvernig hannar maður nafnspjald? En umbúðir?
  • Leturgerðir: Hvernig velur maður leturgerð sem á við verkið? Hvað einkennir mismunandi leturgerðir?
  • Litafræði: Hvað er litahjólið og hvernig má nota það í hönnun?
  • Ljósmyndir: Hvernig breytir maður myndum? Hvaða tæknilegu skilyrði er gott að ljósmyndir uppfylli í verkefnum?
  • Vörumerki: Hvaða máli skiptir litaval í vörumerkjum? Hvernig byggja vörumerki upp ákveðna ímnd?
  • Hugmyndavinna: Hvernig býrðu til hugmyndaborð? Hvernig nýtirðu það?
  • Tæki og tól: Hvaða hugbúnað er gott að nota í grafíska hönnun?

Námskeiðið er kennt á netinu og þú færð aðgang að öllu efninu um leið og þú skráir þig. Þú getu.

Skráning

Vefnámskeið með Hrafnhildi Önnu. Innifalið eru 13 fyrirlestrar, innra net þar sem þú getur horft í öllum tækjum og skírteini þegar þú klárar.

Frá 19.900 kr. - sjá öll námskeið í boði

EÐA

Vissir þú að flest stéttarfélög endurgreiða stóran hluta námskeiðsgjaldsins? Sjá nánar hér.

Flest stéttarfélög endurgreiða námskeiðsgjöld Frama. Finndu þitt stéttarfélag hér að neðan



Kennarinn þinn

Hrafnhildur

Hrafnhildur Anna Björnsdóttir er tæknilegur listamaður (e. Senior Technical Artist) hjá íslenska tölvuleikjafyrirtækinu Parity. Þar sinnir hún fjölbreyttum verkefnum á borð við þrívíddarhönnun, útlitshönnun og módelingu.

Hrafnhildur var áður hjá Sólfar Studios og hefur lokið námi í margmiðlunarhönnun frá Tækniskólanum. Hún hefur einnig starfað sem listamaður og teiknari.


Með Hrafnhildi á myndinni er tíkin Mirra sem er af gerðinni Shih Tzu. Hún kom ekki með beinum hætti að gerð námskeiðsins en veitti andlegan stuðning í gegnum sköpunarferlið.

Fyrir hverja er námskeiðið?

Námskeiðið hentar öllum sem:

  • hafa áhuga á grafískri hönnun og myndrænni framsetningu
  • gera kynningar, gröf eða skýrslur í vinnunni og vilja láta hlutina líta vel út
  • útbúa efni fyrir vefsíður eða til útprentunar
  • vilja bæta sig með nýjum hæfileikum og þekkingu

Hvað mun ég læra?

Eftir námskeiðið munt þú skilja:

  • fræðin á bakvið myndræna framsetningu eins og leturgerðir, litafræði, jafnvægi og sametningu
  • skapandi ferli hönnuða allt frá hugmyndastigi og stafrænu umhverfi að fullbúinni afurð
  • hvernig algeng hönnun er útbúin bæði fyrir vef og prent

Efnistök

Skoðaðu hvaða fyrirlestrar og annað efni er innifalið í námskeiðinu

Undirstöður
Fimm grundvallaratriði
6:27
Letur
6:00
Litafræði
8:11
Ljósmyndir og annað myndefni
6:39
Skipulag, samsetning og samhengi
4:28
Vörumerki, ímynd og markaðssetning
7:32
Vinnsla efnis
Hugbúnaður
12:51
Hugmyndavinna
5:45
Myndmerki (e.logo)
14:32
Nafnspjald
18:43
Umbúðir
13:00
Plakat
12:22
Undirbúningur fyrir prent
14:06
Lok námskeiðs
Könnun
Útskriftarskírteini

13 fyrirlestrar | aðstoð innifalin

Námskeiðið er kennt á netinu. Þú getur byrjað hvenær sem er.

Fáðu öll námskeiðin

Með því að skrá þig í áskrift færð þú ótakmarkaðan aðgang að öllum námskeiðum Frama. Auk þess færðu aðgang að nýjum námskeiðum um leið og þau koma út. Þú getur sagt upp áskriftinni hvenær sem er.

Styrktu ferilskrána

Þegar þú hefur lokið við námskeiðið færðu útskriftarskírteini sem staðfestir það sem þú lærðir.

Þú getur notað skírteinið til þess að sýna núverandi eða verðandi vinnuveitanda þínum eða sett staðfestinguna á ferilskrána þína.

Spurt og svarað

Hvað er innifalið?
Námskeiðið samanstendur af 13 fyrirlestrum sem þú færð aðgang að á nemendasvæði Frama. Þú getur jafnframt spurt spurninga á nemendasvæðinu. Þegar þú lýkur námskeiðinu færðu sent útskriftarskírteini.
Hvað gildir aðgangurinn lengi?
Ævilangur aðgangur er að námskeiðinu ef þú kaupir það stakt. Ef þú skráir þig í áskrift færðu fullan aðgang að námskeiðinu auk allra annarra námskeiða Frama í eitt ár. Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa og hægt er að segja henni upp hvenær sem er.
Get ég fengið styrk frá stéttarfélagi?
Flest stéttarfélög endurgreiða stóran eða allan hluta námskeiðsgjaldsins. Skoðaðu endurgreiðslustefnu stéttarfélaga með því að smella hér.
Þarf ég að kaupa ákveðinn hugbúnað?
Nei, þú þarft ekki að kaupa neinn hugbúnað til að taka þetta námskeið. Hrafnhildur notar hönnunarpakkann Creative Cloud frá Adobe, sem borga þarf fyrir, en hún sýnir líka hvernig nálgast má ókeypis forrit sem nota má til að gera allt það sem farið er yfir á námskeiðinu.
Hvort kennið þið á Windows eða Mac?
Það skiptir ekki máli hvort þú notar Windows eða Mac. Allt sem kennt er á námskeiðinu virkar í báðum stýrikerfum.
Ég er með aðra spurningu
Ekkert mál - sendu okkur skilaboð hér á síðunni eða tölvupóst á hjalp@frami.is og við svörum um hæl.

Byrjaðu að læra í dag

Fyrirtækið

Frami menntun ehf.

Grandagarði 16

101 Reykjavík