Kauptu gjafabréf

Gefðu þekkingu sem endist

Skref 1 af 2 Skref 2 af 2

Hvers konar gjafabréf?

Stakt námskeið — 19.900 kr. Áskrift í eitt ár — 29.900 kr.

Við sendum gjafabréfið á þetta netfang

Öll staðnámskeið Staðnámskeið

Gervigreind og sjálfvirknivæðing fyrir stjórnendur

Lifandi og hagnýtt námskeið þar sem þú færð beina leiðsögn, getur spurt jafnóðum og lærir með öðrum.

Skrá mig
Gervigreind og sjálfvirknivæðing fyrir stjórnendur
Gervigreind og sjálfvirknivæðing fyrir stjórnendur

Upplýsingar og skráning

Hvenær

12. - 13. október
09:00 - 12:00

Hvar

Fantasíusalurinn, Vinnustofa Kjarval, Austurstræti 10a

Námskeiðsgjald

54.900 kr.

Kennari

Hanna Kristín

Námskeiðið

Gervigreind getur gert miklu meira en að svara spurningum eða hjálpa til við einstök verkefni. Hún getur líka tekið að sér afmörkuð verkefni, unnið úr upplýsingum og hjálpað fyrirtækjum að einfalda ferla sem í dag taka mikinn tíma.

Á þessu staðnámskeiði fá stjórnendur skýra yfirsýn yfir gervigreindarerindreka og hvernig hægt er að nýta gervigreind til að sjálfvirknivæða ferla í rekstri. Farið verður yfir hvar tækifærin liggja, hvaða verkefni henta vel og hvað þarf að hafa í huga áður en ráðist er í breytingar.

Námskeiðið hentar stjórnendum og öðrum sem koma að rekstri, stefnumótun eða þróun verkferla. Ekki er gert ráð fyrir tæknilegri þekkingu. Markmiðið er að þátttakendur fari út með betri skilning á möguleikunum og skýrari mynd af því hvað gæti verið raunhæft næsta skref hjá þeirra fyrirtæki.

Einnig verður rætt um hvernig hægt er að finna rétta sérþekkingu og samstarfsaðila þegar kemur að því að þróa og innleiða lausnir sem henta starfseminni.

Námskeiðið fer fram 12. og 13. október kl. 9–12 báða dagana.

Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:

  • hvað gervigreindarerindrekar eru og hvað þeir geta gert
  • hvernig hægt er að skoða verkferla með sjálfvirknivæðingu í huga
  • hvaða verkefni henta vel fyrir gervigreind og hvaða verkefni síður
  • hvar gervigreind getur sparað tíma og einfaldað daglegt starf
  • hvað þarf að vera til staðar áður en hafist er handa
  • hvernig velja má góð fyrstu verkefni og byrja á raunhæfan hátt
  • hvernig og hvar hægt er að finna rétta sérþekkingu fyrir næstu skref
Skrá mig · 54.900 kr.

Fyrirtækið

Frami menntun ehf.

kt. 590219-1420

[email protected]