Kauptu gjafabréf

Gefðu þekkingu sem endist

Skref 1 af 2 Skref 2 af 2

Hvers konar gjafabréf?

Stakt námskeið — 19.900 kr. Áskrift í eitt ár — 29.900 kr.

Við sendum gjafabréfið á þetta netfang

Öll staðnámskeið Staðnámskeið

Fjármál og fjárfestingar

Lifandi og hagnýtt námskeið þar sem þú færð beina leiðsögn, getur spurt jafnóðum og lærir með öðrum.

Skrá mig
Fjármál og fjárfestingar
Fjármál og fjárfestingar

Upplýsingar og skráning

Hvenær

7. október
09:00 - 12:00

Hvar

Fantasíusalurinn, Vinnustofa Kjarval, Austurstræti 10a

Námskeiðsgjald

24.900 kr.

Kennari

Aníta, Kristín og Rósa

Fortuna Invest

Námskeiðið

Flest tökum við fjárhagslegar ákvarðanir á hverjum degi, en höfum aldrei fengið almennilega kennslu í því hvernig við eigum að halda utan um peningana okkar eða byggja upp sparnað.

Á þessu staðnámskeiði er farið yfir það sem við hefðum viljað vita fyrr um fjármál. Farið verður á einfaldan og aðgengilegan hátt yfir heimilisfjármálin og þær ákvarðanir sem geta haft áhrif á fjárhaginn til lengri tíma.

Námskeiðið hentar öllum sem vilja öðlast betri yfirsýn yfir eigin fjármál, koma sparnaði í fastari skorður eða skilja betur hvernig fjárfestingar virka. Engin fyrri þekking er nauðsynleg og áherslan er á hagnýt dæmi og raunhæf skref sem þátttakendur geta tekið eftir námskeiðið.

Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:

  • Hvernig hægt er að fá betri yfirsýn yfir eigin fjármál
  • Hvernig byggja má upp sparnað sem passar við mismunandi þarfir og aðstæður
  • Hvernig getum við brugðist við þegar aðstæður breytast?
  • Muninn á helstu leiðum til sparnaðar og fjárfestinga
  • Hvernig áhætta, ávöxtun og tími tengjast
  • Hvernig taka má upplýstari ákvarðanir og forðast algeng mistök
Skrá mig · 24.900 kr.

Fyrirtækið

Frami menntun ehf.

kt. 590219-1420

[email protected]