Komdu þér í form

Vefnámskeið með Evert Víglundssyni

18 fyrirlestrar Þú getur byrjað strax Aðstoð innifalin
Frá 19.900 kr.

Um námskeiðið

Hvað færðu út úr þessu námskeiði?

Evert Víglundsson hjálpar þér að komast í þitt besta líkamlega og andlega form í 18 fyrirlestrum. Hann fer yfir eftirfarandi atriði:

  • Hreyfing: Mikilvægi hreyfingar og kennsla í undirstöðuatriðum mikilvægustu hreyfinga
  • Þjálfun: Hvernig best er að æfa til að ná hámarksárangri þegar kemur að þoli, fimi og styrk
  • Upphitun, teygjur og nudd: Leiðir til að viðhalda liðleika og koma í veg fyrir meiðsli
  • Svefn: Áhrif svefns á heilsu og leiðir til að sofa betur
  • Næring: Besta mataræðið fyrir heilsuna og leiðir til að borða hollari mat
  • Álag: Leiðir til að draga út streitu með hugleiðslu og streitustjórnun
  • Viðhorf og vanabreytingar: Leiðir til að innleiða betri venjur og viðhalda heilbrigðum lífsstíl

Auk fyrirlestranna fylgir með námskeiðinu 8 vikna æfingaáætlun, matarplan fyrir allar máltíðir vikunnar, uppskriftir að hollum og gómsætum réttum, og leslistar til að kafa dýpra í efnið.

Skráning

Byrjaðu þegar þér hentar

Vefnámskeið með Evert Víglundssyni. Innifalið eru 18 fyrirlestrar og aðgangur að svæði þar sem þú getur horft þegar þér hentar.

18 fyrirlestrar

Þú getur byrjað strax

Aðstoð innifalin

Frá 19.900 kr. – sjá öll námskeið í boði

EÐA
Kaupa gjafabréf

Vissir þú að flest stéttarfélög endurgreiða stóran hluta námskeiðsgjaldsins? Sjá nánar hér.

Flest stéttarfélög endurgreiða námskeiðsgjöld Frama. Finndu þitt stéttarfélag hér að neðan



Kennarinn

Kennarinn þinn

Evert Víglundsson

Evert Víglundsson

Evert Víglundsson er einn helsti líkamsræktarfrömuður Íslands. Hann hefur mikla reynslu af þjálfun og hefur bæði þjálfað afreksfólk á borð við Annie Mist og hjálpað fólki upp úr sófanum í The Biggest Loser. Hann stofnaði líkamsræktarstöðina CrossFit Reykjavík árið 2008 og skipuleggur á hverjum degi æfingar fyrir 800 manns.

Evert hefur lengi haft áhuga á öllu sem viðkemur heilbrigðum lífsstíl og haldið fjölmarga fyrirlestra um land allt því tengdu. Á þessu námskeiði miðlar Evert þekkingu sinni af þjálfun og heilbrigði, bæði því sem skilar árangri og ekki síst því sem gerir það ekki.

Fyrir hverja og hvað lærir þú

Námskeið sem nýtist í raun

Fyrir hverja er námskeiðið?

Námskeiðið hentar öllum sem:

  • vilja bæta heilsuna og auka lífsgæði sín
  • vilja gera meiri kröfur til sjálfs síns í daglegu lífi
  • hafa áhuga á persónulegri betrun og heilbrigðum lífsstíl
  • vilja komast í form í víðari skilningi

Hvað mun ég læra?

Eftir námskeiðið munt þú skilja:

  • sambandið milli ólíkra þátta heilbrigðs lífsstíls
  • hvaða æfingar skila árangri og algeng mistök við að gera þær
  • hvernig á að tryggja góða næringu
  • það sem hefur áhrif á svefninn okkar og hvernig á að sinna andlegu hliðinni

Efnistök

Kynntu þér innihaldið

Skoðaðu hvaða fyrirlestrar og annað efni er innifalið í námskeiðinu.

Inngangur

3:34

Svefn - fyrri hluti

5:00

Svefn - seinni hluti

18:40

Næring - fyrri hluti

11:43

Næring - seinni hluti

14:15

Matarplan

Uppskriftir

Lesefni

Mikilvægi hreyfingar

6:48

Hnébeygja

11:35

Réttstöðulyfta

11:10

Pressa

7:47

Tog

2:22

Uppsetur og planki

4:09

Þjálfun

13:22

Æfingaáætlun

Upphitun

6:53

Teygjur og nudd

5:44

Álag

8:23

Hugleiðsla

5:35

Viðhorf

4:29

Lesefni

Lokaorð

6:49

Könnun

Útskriftarskírteini

Styrktu ferilskrána þína

Þegar þú hefur lokið námskeiðinu færðu útskriftarskírteini sem staðfestir það sem þú lærðir.

Þú getur notað skírteinið til að sýna núverandi eða verðandi vinnuveitanda þínum, eða bætt því við ferilskrána þína sem staðfestingu á þekkingu og færni.

Útskriftarskírteini

Innifalið

Auk fyrirlestranna er eftirfarandi efni innifalið í námskeiðinu.

Æfingaáætlun

Átta vikna æfingaáætlun hönnuð af Evert sem hjálpar þér að komast í frábært líkamlegt form, sama á hvaða stigi þú ert í dag. Áætlunin inniheldur þjár gerðir æfinga: þol, fimleika og styrk.

Matarplan

Matarplan frá Evert fyrir morgun-, hádegis- og kvöldmat alla daga vikunnar. Með planinu fylgja leiðbeiningar um mat til að borða og forðast, auk heilræða til að planið skili sem mestum árangri.

Uppskriftir

Í matarplaninu er mikið af einföldum réttum, en fyrir gómsætari rétti fylgja einnig uppskriftir að bragðgóðum og hollum réttum fyrir morgunmat, hádegismat eða kvöldmat.

Leslistar

Evert mælir með bókum, myndböndum, hlaðvörpum og snjallsímaöppum sem þú getur sótt í til að kafa dýpra í ólíkar undirstöður heilbrigðs lífsstíls: hreyfingu, næringu, svefn og andlega þáttinn.

Spurt og svarað

Námskeiðið samanstendur af 18 fyrirlestrum sem þú færð aðgang að á nemendasvæði Frama. Þú getur jafnframt spurt spurninga á nemendasvæðinu. Þegar þú lýkur námskeiðinu færðu sent útskriftarskírteini.
Ævilangur aðgangur er að námskeiðinu ef þú kaupir það stakt. Ef þú skráir þig í áskrift færðu fullan aðgang að námskeiðinu auk allra annarra námskeiða Frama í eitt ár. Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa og hægt er að segja henni upp hvenær sem er.
Flest stéttarfélög endurgreiða stóran eða allan hluta námskeiðsgjaldsins. Skoðaðu endurgreiðslustefnu stéttarfélaga með því að smella hér.
Ekkert mál – sendu okkur skilaboð hér á síðunni eða tölvupóst á [email protected] og við svörum um hæl.

Byrjaðu í dag

Lærðu á þínum hraða

Þú getur byrjað strax og lært hvenær sem þér hentar.

Fyrirtækið

Frami menntun ehf.

kt. 590219-1420

[email protected]