Gervigreind er að færast frá því að svara spurningum yfir í að vinna verk. Gervigreindarerindreki fær markmið, skipuleggur sjálfur skrefin, sækir upplýsingar í skjöl og kerfi og framkvæmir aðgerðir. Slíkir erindrekar eru nú byggðir inn í tólin sem flestir vinnustaðir nota þegar.
Á þessu hagnýta staðnámskeiði læra þátttakendur hvað erindrekar eru, hvernig þeir virka og hvernig þeir eru smíðaðir, prófaðir og reknir á öruggan hátt. Hver þátttakandi smíðar sinn eigin aðstoðarmann, skref fyrir skref, í því tóli sem hann notar í vinnunni, til dæmis Copilot, ChatGPT, Claude eða Gemini.
Námskeiðið hentar starfsfólki, sérfræðingum og stjórnendum sem nota gervigreind í dag og vilja taka næsta skref. Ekki er gert ráð fyrir forritunarkunnáttu. Þátttakendur mæta með fartölvu með aðgangi að gervigreindartóli.
Námskeiðið fer fram 1. og 2. desember kl. 9 til 12 báða dagana.
Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:
- hvernig mállíkön virka og hvað greinir erindreka frá spjallmennum
- hvernig skrifa má fyrirmæli sem gefa áreiðanleg svör
- hvernig smíða má aðstoðarmann sem svarar út frá eigin skjölum
- hvernig verkfæri, tengingar og minni gera aðstoðarmann að erindreka
- hvernig verjast má fyrirmælainnskotum og gagnaleka
- hvernig erindreki er prófaður og metinn áður en honum er treyst
- hvað erindreki kostar og hvernig hann er rekinn og honum viðhaldið
Kennarinn: Dr. Hanna Kristín Skaftadóttir, Ph.D. í gervigreind og sjálfvirknivæðingu ferla í viðskiptum
