Bókhald og rekstur

Vefnámskeið með Silju Ósvaldsdóttur

Um námskeiðið

Lærðu allt um bókhald og um leið grunnatriðin í rekstri fyrirtækja. Á námskeiðinu munt þú læra eftirfarandi:

  • Færsla bókhalds: Hvernig kemur þú reglu á bókhaldið og nýtir það til betri ákvörðunartöku?
  • Debet og kredit: Tvíhliða bókhald útskýrt á mannamáli.
  • Reikningar: Hvernig gefur maður út reikninga? Hvernig skráir maður og móttekur reikninga?
  • Bókhaldsjafnan: Eignir = skuldir+eigið fé er jafna sem sem mun ekki lengur flækjast fyrir þér.
  • Ársreikningar: Helstu liðir ársreikninga útskýrðir með sýnidæmum
  • Launamál: Hvernig bókfærir maður laun? Hvernig virka stéttarfélög? En skattkort og persónuafsláttur?
  • Skattar: Nákvæmt yfirlit um virðisaukaskatt og skattframtöl.

Námskeiðið er kennt á netinu og þú færð aðgang að öllu efninu um leið og þú skráir þig. Þ.

Skráning

Vefnámskeið með Silju Ósvaldsdóttur. Innifalið eru 14 fyrirlestrar, innra net þar sem þú getur horft í öllum tækjum og skírteini þegar þú klárar.

Frá 19.900 kr. - sjá öll námskeið í boði

EÐA

Vissir þú að flest stéttarfélög endurgreiða stóran hluta námskeiðsgjaldsins? Sjá nánar hér.

Flest stéttarfélög endurgreiða námskeiðsgjöld Frama. Finndu þitt stéttarfélag hér að neðan



Kennarinn þinn

Silja Dögg

Silja Ósvaldsdóttir er eigandi og framkvæmdastjóri bókhaldsfyrirtækisins Fastlands. Hún hefur áralanga reynslu af rekstri og starfaði áður sem framkvæmdastjóri Álnabæjar og Völusteins. Hjá Fastlandi starfa 11 bókarar og viðskiptafræðingar undir styrkri leiðsögn Silju. Silja er með gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Silja hefur síðustu ár kennt bókhald hjá Ljósmyndaskólanum og hjálpað mörgum að stíga sín fyrstu skref í eign rekstri.

Hún leggur áherslu á að útskýra námsefnið á skemmtilegan og aðgengilegan hátt með nóg af sýnidæmum.

Fyrir hverja er námskeiðið?

Námskeiðið hentar öllum sem:

  • koma reglu á bókhald fyrirtækja
  • taka betri ákvarðnir í rekstri
  • skilja betur grunnatriðin á bakvið rekstur fyrirtækja
  • bæta sig með nýjum hæfileikum og þekkingu

Hvað mun ég læra?

Eftir námskeiðið munt þú skilja:

  • muninn á debet og kredit
  • uppbyggingu ársreikninga
  • hvernig hægt er að nýta bókhald til ákvörðunartöku
  • aðalatriðin í færslu bókhalds

Efnistök

Skoðaðu hvaða fyrirlestrar og annað efni er innifalið í námskeiðinu

Bókhald og rekstur
Yfirlit
6:12
Bókhaldsjafnan 1
9:46
Bókhaldsjafnan 2
8:44
Kaup og sala
6:15
Birgðarbókhald
9:28
Virðisaukaskattur 1
8:29
Virðisaukaskattur 2
13:34
Laun 1
12:51
Laun 2
17:03
Eignir og afskriftir
7:47
Fjármagnstekjur og kostnaður
4:42
Hagnaður og tekjuskattur
5:17
Ársreikningurinn 1
10:16
Ársreikningurinn 2
9:13
Lok námskeiðs
Könnun
Útskriftarskírteini

14 fyrirlestrar | aðstoð innifalin

Námskeiðið er kennt á netinu. Þú getur byrjað hvenær sem er.

Fáðu öll námskeiðin

Með því að skrá þig í áskrift færð þú ótakmarkaðan aðgang að öllum námskeiðum Frama. Auk þess færðu aðgang að nýjum námskeiðum um leið og þau koma út. Þú getur sagt upp áskriftinni hvenær sem er.

Styrktu ferilskrána

Þegar þú hefur lokið við námskeiðið færðu útskriftarskírteini sem staðfestir það sem þú lærðir.

Þú getur notað skírteinið til þess að sýna núverandi eða verðandi vinnuveitanda þínum eða sett staðfestinguna á ferilskrána þína.

Spurt og svarað

Hvað er innifalið?
Námskeiðið samanstendur af 14 fyrirlestrum sem þú færð aðgang að á nemendasvæði Frama. Þú getur jafnframt spurt spurninga á nemendasvæðinu. Þegar þú lýkur námskeiðinu færðu sent útskriftarskírteini.
Hvað gildir aðgangurinn lengi?
Ævilangur aðgangur er að námskeiðinu ef þú kaupir það stakt. Ef þú skráir þig í áskrift færðu fullan aðgang að námskeiðinu auk allra annarra námskeiða Frama í eitt ár. Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa og hægt er að segja henni upp hvenær sem er.
Get ég fengið styrk frá stéttarfélagi?
Flest stéttarfélög endurgreiða stóran eða allan hluta námskeiðsgjaldsins. Skoðaðu endurgreiðslustefnu stéttarfélaga með því að smella hér.
Ég er með aðra spurningu
Ekkert mál - sendu okkur skilaboð hér á síðunni eða tölvupóst á hjalp@frami.is og við svörum um hæl.

Byrjaðu að læra í dag

Fyrirtækið

Frami menntun ehf.

Grandagarði 16

101 Reykjavík